Á meðan á sunnudagssamkomunni stendur er barnastarfið í gangi á neðstu hæð hússins. Öll börn eru hjartanlega velkomin.
Kennslan í barnastarfinu er mjög fjölbreytt og ættu allir að geta skemmt sér vel og lært eitthvað nýtt.
Börnunum er skipt niður eftir aldri; 1-3 ára, 4-6 ára og 7-12 ára.
Yngstu hóparnir (1-6 ára) byrja samkomuna alltaf hjá foreldrum sínum í lofgjörðinni en þegar beðið er fyrir Orðinu hefst hópastarfið þeirra.
Elsti hópurinn er hins vegar aðeins uppi hjá foreldrum í lofgjörðinni fyrsta sunnudag í hverjum mánuði en aðra sunnudaga mæta þau beint niður í barnastarfið.
Vantar þig svör við einhverjum spurningum um Biblíuna eða kristna trú? Skrifaðu þá endilega spurninguna hér fyrir neðan og kennarar í barnastarfinu munu svara spurningunni hérna á síðunni.
Athugið að aðeins er ætlast til þess að börn noti þessa þjónustu. Ef aðrir vilja spyrja spurninga þá er það í boði neðst á forsíðu heimasíðunnar.