|
Við í barnastarfinu ætlum að taka þátt í breytingunum sem eiga sér stað í kirkjunni okkar. Hluti af þeim breytingum snýr að skipulagi barnastarfsins. En við stefnum m.a. að því að fjölga hópum svo hver einstaklingur fái að njóta sín betur. Hópunum verður fjölgað um einn með því að skipta elsta hópnum í tvennt. Eftir það verða hóparnir fjórir; 1-3 ára, 4-6 ára, 7-9 ára og 10-12 ára. Breytingarnar verða ekki strax enda þurfum við að fjölga kennurum áður en það verður. Við erum að biðja Guð um 8 kennara til viðbótar til þess að vera fullmönnuð, en við höfum verið undirmönnuð síðustu ár. Nú höldum við að tími sé kominn á að Guð fjölgi í hópi okkar.
Við erum líka að gera tilraun með að hafa fleiri hópa niðri frá upphafi lofgjörðarinnar, eða alveg frá 4 til 12 ára. Það gerum við í kjölfar þess að sunnudagssamkomurnar voru takmarkaðar við eina og hálfa klukkustund. Til þess að tryggja að það gangi upp hjá okkur biðlum við til foreldra að sækja börnin strax og samkomu er lokið (kl. 18) og taka þau með sér upp í kaffi. Það er nefnilega reynsla okkar að börnin eru oft orðin mjög þreytt þá.
Á næstu vikum og mánuðum munum við halda áfram að breyta starfinu til þess að finna sem best form á samkomunum og biðjum við foreldra um að afsaka það. :)
Guð ætlar að gera stóra hluti með þessa frábæru krakka sem við erum með og við ætlum að gera okkar besta, með Guðs hjálp, til þess að tryggja að þeir fái að þekkja Guð og eiga samfélag við hann. Það er eitt af takmörkum okkar að börnin trúi ekki bara á Guð sem mamma og pabbi þekkja heldur eigi þau persónulegt samfélag við hann.
P.s. Fyrir samkomur reynum við alltaf að senda foreldrum sms um það sem er að gerast þann daginn. Ef þú hefur ekki fengið sms nýlega en villt fá það fyrir samkomur þá máttu endilega senda upplýsingar um nafnið þitt og barnanna þinna, aldur þeirra og símanúmerið þitt á andri@krossinn.is og við bætum þér á listann.
Við viljum endilega fá að kynnast foreldrum barnanna okkar og kynnast þannig börnunum betur í leiðinni þannig að hikið ekki við að koma niður með börnunum og kynna ykkur fyrir okkur. :D
Sjáumst á samkomu!
Andri
Til baka . . .
|