Krossinn | lifandi kirkja - Markmið barnastarfsins

Persónuleg trú
Við höfum sett okkur það markmið í barnastarfinu að þau börn sem fara í gegnum starfið eignist persónulega trú á Guð.  Við viljum ekki að börnin trúi bara af því foreldrar þeirra segja þeim að gera það, ekki heldur af því sunnudagaskólakennararnir segja þeim það.  Það sem við vonumst eftir er að börnin nálgist Guð á eigin forsendum og eignist einlæga þrá eftir samfélagi við Hann.  Við treystum því að alveg eins og Guð mætir fullorðna fólkinu þá getur hann mætt börnunum.  Guð lítur nefnilega ekki á aldur fólks, né nokkrar kringumstæður þess, heldur vill hann mæta öllum. 

Undirbúningur fyrir þjónustu
Eitt af markmiðum okkar í barnastarfi Krossins er að hvetja börnin okkar til að nota þá hæfileika sem Guð hefur gefið þeim og reyna að finna sinn stað í þjónustu fyrir ríki Guðs.  Þess vegna reynum við eftir fremsta megni að fá krakkana til þess að taka reglulega þátt í samkomunum, t.d. með þjónustu í djáknastarfi, predikun, söng, bæn o.þ.h.

Grundvallaratriði kristinnar trúar
Við viljum einnig að börnin þekki grundvallaratriði kristinnar trúar og geti sagt öðrum frá trú sinni.  Það gerum við með því að kynna fyrir börnunum það sem Biblían hefur að segja um hin ýmsu málefni og segjum þeim frá sögum Biblíunnar.

Börnin kunni að lesa Biblíuna
Það getur verið flókið fyrir þann sem hefur aldrei opnað Biblíuna að skilja hvernig hún virkar, hvernig á að lesa hana, hvernig á að finna ákveðin vers og svo framvegis.  Til þess að börnin geti vaxið í trúnni þá leggjum við líka mikla áherslu á að börnin læri að lesa Biblíuna sjálf, skilji mikilvægi hennar og geti nýtt sér fróðleik hennar.

Krossinn - lifandi kirkja | Hlíðasmára 5-7 | 200 Kópavogi | Sími 554 3377 | Fax 554 4500 | krossinn@krossinn.is