Hjálparstarf í Honduras
Good News Today - alþjóðleg trúboðsstarfsemi
Good News Today ministries er tilkomið vegna fólks sem hefur hlýtt kalli Drottins um trúboð og hjálparstarf þar sem neyðin er mikil. Þetta fólk eru Curtis Silcox og hans fjölskylda. Þau koma frá Tennessee, USA, þar sem skrifstofa GNT hefur aðsetur sitt og eru það aðallega Deliska og Jeff Lombard ásamt Curtis og syni hans Scott Silcox sem sinna starfsseminni þar, milli þess sem þau fara til þeirra staða þar sem hjálparstarfið er unnið. Þarna leggja margir hönd á plóginn og eru engin landamæri þegar kemur að því að sýna kærleikann í verki og boða Guðs orð. Hvort sem um er að ræða byggingu sjúkrahúss í Honduras eða að boða fagnaðarerindið í Kína.
Í desember 2000 fóru Inga Guðnadóttir og Sara Lind Kolbeinsdóttir í trúboðsferð ásamt GNT til Le Ceiba, Honduras. Sjá þar yndislegt fólk sem býr við mikla neyð, börn sem búa á ruslahaugum og nærast á honum, og fá smá innsýn í hvernig lífið í Honduras er. Þarna er vettvangur til að bretta upp ermarnar, sýna kærleikann í verki og boða orð Guðs. Varð þessi ferð kveikjan að samstarfi milli Krossins og GNT.
Honduras - landið sjálft
Stærð: 112,090 km2 staðsett í Mið-Ameríku
Nokkuð um milda jarðskjálfta, sterkir og eyðileggjandi fellibylir og flóð.
Yrkilegt land 14%, stöðug uppskera 2%, beitiland 30%, áveitusvæði 900km2.
Fólksfjöldi: 5,459,743 (áætl. 1995), tvöföldun á 25 ára fresti. Borgarsamfélagið fer stækkandi, sveitarsamfélagið er stórt vegna gríðarlegs fólksfjölda og mikil fátækt ríkir þar því að framboð á landi er nánast ekkert. Meirihluti Hondurasíbúa eru rómversk-kaþólskir en mótmælendatrú fer ört vaxandi.
Efnahagur: Eitt af fátækustu löndunum í hinum vestræna heimi, vanþróað efnahagskerfi, mjög háð erlendri fjárhagsaðstoð, samgöngur slæmar, byggingarefni dýrt.
Skólamál: Í Honduras er skólaskylda fyrir börn á aldrinum 7-14 ára. Vegna skorts á skólum, kennurum og kostnaðarsömum skólarekstri er góð kennsla ekki í boði fyrir hið almenna Honduras-barn. Ólæsi er víða eða um 40% í þéttbýli og allt að 80% í dreifbýli.
Heilbrigðismál: Mikil vannæring er helsta orsök sjúkdóma og plága(kólera) en einnig vanþroska meðal barna. Læknar eru fámennir, kannski 1 læknir fyrir ca. 1510 íbúa. Sjúkrahúsin eru fá og mikill skortur er á hæfu starfsfólki, tækjabúnaði og lyfjum. Lækniskostnaður er mikill og samgöngur slæmar svo að fólk á erfitt með að ná til sjúkrahúsa eða almennrar læknisaðstoðar. Mikið er um ungbarnadauða.
Le Ceiba - verkefnið
Eins og stendur er verið að byggja sjúkrahús í þorpi nálægt borginni Le Ceiba. Þetta verkefni er stórt, sérlega vegna þeirrar miklu þarfar fyrir læknisaðstöðu á þessu svæði. Þarna eru fyrstu skrefin tekin í Honduras. Einnig verða byggð þjónustuhús fyrir þá sem munu sinna hjálparstarfinu í Le Ceiba.
Vegna lélegs samgöngukerfis, sem samanstendur aðallega af aurugum fjallavegum, er nánast ógerningur fyrir íbúa þorpsins að fá almenna læknisaðstoð og Deliska Lombard, sem var á svæðinu í mars/apríl, hitti ungan ekkil með 6 börn á framfæri en eiginkona hans lést af barnsförum og orsökin var of hár blóðþrýstingur.
Samskiptakerfin í Honduras eru ekki beysin en vonast er til að á því muni verða bót í þorpinu á þessu ári.