Krossinn | lifandi kirkja - Tónlistarstarf

Tónlistarstarf  Krossins


Markmið;

Okkar markmið er að ná til sem flestra  og að fólk megi kynnast Jesú í gegnum tónlist okkar.

Við viljum leggja okkar af mörkum til að sjá kirkjuna okkar vaxa og dafna.
Tilgangur okkar er að hvetja, uppörva og þjálfa þá sem Guð hefur kallað í tónlistarþjónustu í ágæti, næmni, auðmýkt og einnig styrk.
Þrá okkar er sú að sjá kirkjuna okkar fulla af fólki sem vill þjóna Guði í anda og í sannleika.

"En lúðramenn og söngmenn áttu að byrja í senn og einraddað að lofa og vegsama Drottin - og er menn létu lúðra og skálabumbur kveða við og hin önnur hljóðfæri og þakkargjörð til Drottins "því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu," þá fyllti ský musterið, musteri Drottins, og máttu prestarnir eigi inn ganga fyrir skýinu til þess að gegna þjónustu, því að dýrð Drottins fyllti hús Guðs. "
2.Kron.5:13-14


Æfingar eru 2 klst. fyrir sunnudagssamkomur.
Allir meðlimir kirkjunnar sem kallaðir eru í tónlistarþjónustu eru boðnir velkomnir í starfið.

Í lofgjörðarhópnum eru einstaklingar sem uppfylla eftirfarandi skilyrði;
. Eru endurfæddir og eiga persónulegt samband við Jesú Krist.
. Skráðir meðlimir kirkjunnar.
. Verða að mæta á vikulega æfingar.
. Verða að vera færir um að syngja að minnsta kosti aðra hverja viku.
. Skuldbundnir til að þjóna Drottni.

Hefur þú áhuga að vera með ?

Láttu okkur vita hvar þinn áhuga er í að taka þátt. tonlist@krossinn.is 

Tónlistarstjóri er Rafn Björgvinsson.

 
Krossinn - lifandi kirkja | Hlíðasmára 5-7 | 200 Kópavogi | Sími 554 3377 | Fax 554 4500 | krossinn@krossinn.is