| 19. febrúar 2010 |
|
| Vakning! |
Þeim sem hafa komið á samkomur í Krossinum að undanförnu er ljóst að Drottinn Guð almáttugur skapari himins og jarðar er að vinna merkilegt verk og það sem er að gerast er meira en vitjun, það eru vakningatímar.
Bylgja hefur risið og mun rísa hærra. Bæn okkar og þrá er að sjá öllum hindrunum rýmt í burt og máttug hönd Guðs verði sýnilegri en nokkru sinni fyrr.
Við lifum á slíkum tímum að mönnum má vera ljóst, öllum mönnum, að við þurfum sterka hönd og skilyrðislausan kærleika til að leiða okkur heil í höfn. Krafa okkar er á náð Guðs og mikla náðartíma.
Það er ekki einungis að okkar ágæta þjóð sem glímir við vanda sem er stærri en hún sjálf, heldur eru margar þjóðir í sömu sporum og fleiri munu fylla þann hóp.
Svar okkar er að þrýsta okkur nær Guði og byggja okkur skjól sem heldur í tíma og eilífð.
Reyndar ekki aðeins fyrir okkur, heldur fyrir alla þá sem finna að vindurinn blæs og stormur er í aðasigi.
Það eru margir á andlegu berangri í dag sem bíða þess að heyra röddu okkar.
Guð hefur opinberað sig sem aldrei fyrri og Hann mun halda því áfram. Skylda okkar er að standa í skarðinu og benda mönnum á þann veg sem einn endar ekki í vegleysu.
Vegurinn er Jesús. Sannleikurinn er Jesús Lífið er Jesús.
Það býður enginn betur og ekker sambærilegt er til hvorki á himni né á jörðu.
Guð er góður alltaf.
Lútum Honum, hlýðum Honum og njótum náðar hnas og kærleika.
Guð blessi þig.
Gunnar Þorsteinsson
Til baka . . .
|
|