Krossinn | lifandi kirkja - Safnaðarstarf
17. janúar 2010
Ekki hið umliðna, ekki það sem áður var
Nú eru annir hins nýja árs.  Hið gamla kemur aldrei til baka í marháttuðum skilningi.  Guð gaf okkur þetta orð í upphafi árs.:

Jesaja 43:18-19
-18- Rennið eigi huga til hins umliðna og gefið eigi gætur að því er áður var.
-19- Sjá, nú hefi ég nýtt fyrir stafni, það tekur þegar að votta fyrir því sjáið þér það ekki? Ég gjöri veg um eyðimörkina og leiði ár um öræfin.

Í þessum versum er áherslan á breytingar og nýja tíma.  Ég tel að öllum ætti að vera ljóst að Ísland verður aldrei eins og það var.  Breytingarnar hér eru varanlegar...og viðvarandi.

Það er ekki vís að allir sjái þetta, en ég bið menn um að rýna inn í sortann.

Eins er í alþjóðlegu samhengi.  Miklar breytingar hafa orðið og enn meiri breytingar eru í aðsigi.

Náttúruhamfarirnar á Haítí segja sýna sögu og gefa tóninn, ef svo má segja, fyrir hið nýja ár.  Allt verður skekið sem hægt er að skekja.

Af hverju Haítí?  Er það vegna þess að þar eru et.v. fleiri ofurseldir óvininum en nokkurs staðar annars staðar?  Ég ætla ekki að taka þátt í þeirri umræðu, en ég segi – maður líttu þér nær-.

Hið umliðna og það sem áður var kemur ekki til baka.  Við verðum að horfast í augu við breyttan veruleika undir skjóli vængja þess sem hefur allt vald á himni og á jörðu.

Ég ætla að vera tilbúinn,

Guð Blessi þig,

Gunnar Þorsteinsson


Til baka . . .

Krossinn - lifandi kirkja | Hlíðasmára 5-7 | 200 Kópavogi | Sími 554 3377 | Fax 554 4500 | krossinn@krossinn.is