Krossinn | lifandi kirkja - Safnaðarstarf
27. febrúar 2010
Öflugur jarðskjálfti í Chile

Talið er að minnsta kost sex hafi látist og fleiri slasast í öflugum jarðskjálfta upp á 8,8 á Richter sem skók Chile í Suður Ameríku í morgun. Þetta er stærsti jarðskjálftinn sem hefur riðið yfir landið í 25 ár. Óttast er að fleiri hafi látist og slasast en tölur um það eru á reiki.

Upptök jarðskjálftans voru rúmlega 90 kílómetra norðaustur af borginni Concepcion og tæplega 320 kílómetra suðvestur af borginni Santiago. Gefin hefur verið út viðvörun vegna mögulegrar flóðbylgjuhættu í Chile, Perú og Ekvador.

Á mörgum svæðum er rafmagnslaust og allar símalínur liggja niðri. Stærsti jarðskjálfti tuttugustu aldar eða 9,5 á Richter skók Chile árið 1960 og varð 1655 manns að bana að því er fram kemur á BBC.

Grein af visir.is



Til baka . . .

Krossinn - lifandi kirkja | Hlíðasmára 5-7 | 200 Kópavogi | Sími 554 3377 | Fax 554 4500 | krossinn@krossinn.is