Samfélagið Krossinn
Krossinn var stofnaður 12. ágúst 1979 í Kópavogi og hlaut löggildingu trúfélags 1982. Fyrstu árin hafði söfnuðurinn aðsetur í Auðbrekku 34, en flutti sig um set 1982 og innréttaði safnaðarheimili á efri hæð KRON-hússins að Álfhólsvegi 32. Fjórum árum síðar keypti Krossinn húsnæði í Auðbrekku 2, en núverandi safnaðarheimili er við Hlíðarsmára 5-7.
Rætur Krossins liggja í Hvítasunnukirkjunni og má einna helst skilgreina söfnuðinn sem afsprengi hvítasunnuvakningarinnar. Þannig leggur hann áherslu á persónulegt trúarsamfélag meðlima sinna og þátttöku hvers og eins í safnaðarstarfinu. Frá upphafi hefur söfnuðurinn einkum verið þekktur fyrir líflegt samkomuhald og ákveðna rödd inn í samfélagið, meðal annars hvað snertir vímuefnavarnir og siðferðisleg álitamál. Forstöðuhjón Krossins eru Gunnar Þorsteinsson og Ingibjörg Guðnadóttir.
Samkomur Krossins
Sunnudögum kl. 16:30
Þriðjudögum kl. 20:00
Laugardögum kl. 20:30
Almennar bænastundir eru haldnar á miðvikudögum kl. 20:00 og 30 mínútum fyrir hverja samkomu.
Unglingastundir eru á fimmtudögum kl. 20:00
Allir eru velkomnir.