Krossinn | lifandi kirkja - Samþykktir Krossins

Samþykktir Krossins

1. kafli.  Heiti safnaðarins, heimili og hlutverk.

1. gr. Söfnuðurinn heitir Krossinn. Heimili hans er að Hlíðasmára 5-7, Kópavogi. Hann hefur varnarþing í Kópavogi.

2. gr. Hlutverk safnaðarins er:

1. Að boða friðþægingarverk Drottins Jesú Krists, þ.e. að Kristur hafi með dauða sínum friðþægt fyrir syndir allra manna og að endurlausnin sé veitt hverjum þeim sem trúir.

2. Að boða helgun til orðs og æðis og andlegan vöxt til hans sem er höfuðið, Kristur.

3. Að eiga samvinnu við þá sem vilja vinna að jákvæðum framgangi kristinnar trúar.

4. Að styrkja boðun kristinnar trúar, heima og erlend­is.

5. Að fylgja handleiðslu Orðs Guðs og anda Guðs í smáu og stóru.


3. gr. Tilgangi sínum hyggst söfnuðurinn ná með því:

1. Að hafa samkomur, biblíulestra og bænastundir reglulega svo og með barna- og unglingastarfi.

2. Að boða trú sína og kenningar sem víðast.

3. Að hafa á boðstólum efni í töluðu og rituðu máli til andlegrar uppbyggingar og fræðslu.


2. kafli  Safnaðarmeðlimir

4. gr. Allir sem trúa á friðþægingarverk Drottins Jesú Krists og orð Heilagrar ritningar og eru sammála trúarjátningum og kenningum safnaðarins og vilja í einlægni framganga í helgun og Guðlegri breytni geta orðið meðlimir í söfnuðinum.

5. gr. Þeir sem vilja tilheyra söfnuðinum skulu rita nöfn sín á þar til gert eyðiblað sem sendist Hagstofu Íslands. 

6. gr. Stjórn safnaðarins getur vikið manni úr söfnuðinum, ef henni þykir efni standa til. Slíkt má einnig bera upp á safnað­arfundi. 

7. gr. Reikningsár safnaðarins er almanaksárið.

 
3. kafli Safnaðarfundir

8. gr. Safnaðarfundur hefur æðsta vald í málefnum safnaðarins. Safnaðarfund skal boða með minnst viku fyrirvara og skal hann auglýstur á samkomum safnaðarins. Meirihluti atkvæða ræður úrslitum í þeim málum sem borin eru undir fundinn. Aðalsafnaðar­fundur skal haldinn í apríl ár hvert eða eftir ákvörðun stjórnar..

9. gr. Stjórn safnaðarins skal kosin á safnaðarfundum. Kosninga­rétt hafa meðlimir safnaðarins 18 ára og eldi. Kjörgengi hafa þeir sem með nærveru sinni og efnum (tíundum og fórnum) stuðla að vexti og viðgengi safnaðarins og uppfylla einnig önnur skilyrði Ritninganna. Á safnaðarfundum er hægt að biðja stjórnina að gera grein fyrir störfum sínum.

10. gr. Lögum safnaðarins er aðeins hægt að breyta á safnaðar­fundum og þarf til þess 3/4 atkvæða þeirra sem mæta. Lagabreyt­ingatillögur skulu vel auglýstar í fundarboðum.

 
4. kafli Stjórn safnaðarins

11. gr. Stjórn safnaðarins skal skipuð fimm mönnum og einum til vara. Forstöðu­manni auk fjögurra annarra, sem valdir eru á safnað­arfundi. Forstöðu­mann skal kjósa sérstaklega, en stjórnar­menn skal kjósa í senn. Varamaður er sá er hlýtur næst flest atkvæði án þess að hljóta kosningu í stjórn. Varamaður tekur sæti ef stjórnarmaður er fjarverandi samfellt í meira en 3 mánuði.

12. gr. Stjórn safnaðarins ræður málefnum hans, með þeim tak­mörkunum sem Heilög ritning og lög safnaðarins setja. Stjórnin tekur ákvarðanir um starfsemi safnaðarins og ber ábyrgð á fjárreiðum hans. Hún skuldbindur söfnuðinn gagnvart öðrum aðilum og er undirskrift forstöðumanns og gjaldkera næg til þess.

13. gr.  Skipan stjórnar má endurskoða á safnaðarfundi.

14. gr. Stjórnarfundi skal boða með tryggilegum hætti og með eins dag fyrirvara ef unnt er. Stjórnarfundur er ályktunarhæfur ef þrír eða fleiri úr stjórninni eru mættir. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum. Nú eru atkvæði jöfn, ræður þá atkvæði forstöðumanns. Gerðir stjórnarinnar skulu bókfærðar.

 
5. kafli.   Ýmis ákvæði

15. gr.  Komi fram tillaga um að söfnuðinum skuli slitið, skal hún sæta sömu meðferð og tillaga til lagabreytinga, sbr. 10 gr..

16. gr. Verði söfnuðinum slitið, renna eigur hans til trúboðs og kristniboðs.

Krossinn - lifandi kirkja | Hlíðasmára 5-7 | 200 Kópavogi | Sími 554 3377 | Fax 554 4500 | krossinn@krossinn.is