Krossinn | lifandi kirkja - Heilagur Andi
3.  K A F L I

Heilagur Andi

 
Við skulum athuga hvað Ritningin gefur til kynna um persónu Heilags Anda:

En Pétur mælti: "Ananías, hví fyllti Satan hjarta þitt, svo að þú laugst að heilögum anda og dróst undan af verði lands þíns? Var landið ekki þitt, meðan þú áttir það, og var ekki andvirði þess á þínu valdi? Hvernig gastu þá látið þér hugkvæmast slíkt tiltæki? Ekki hefur þú logið að mönnum, heldur Guði." (Postulasagan 5:3,4)

Menn gera sér að sjálfsögðu ljóst, að ekki er hægt að ljúga að ópersónubundnum krafti, eins og sumir segja Heilagan Anda vera. En það er hægt að ljúga að Heilögum Anda og ekki aðeins að ljúga að Honum heldur geta menn með guðlausri breytni sinni hryggt Hann:

Hryggið ekki Guðs heilaga anda, sem þér eruð innsiglaðir með til endurlausnardagsins. (Efesusbréfið 4:30)

Það er ekki sem Heilagur Andi sé fjarlægur, heldur er Hann virkur í starfi Guðs á jörðinni í dag, og er það afl sem kristnir menn eiga að leiðast af. Heilagur Andi starfar með börnum Guðs alls staðar þar sem hin heilnæma kenning Orðsins er höfð um hönd. Hann elur önn fyrir verki Guðs og þeim sem því sinna á sinn milda og persónulega máta:

Það er ályktun heilags anda og vor að leggja ekki frekari byrðar á yður en þetta, sem nauðsynlegt er. (Postulasagan 15:28)

En öllu þessu kemur til leiðar einn og sami andinn, og hann útbýtir hverjum og einum eftir vild sinni. (1. Korintubréf 12:11)

Biblían kennir okkur skýrt að Heilögum Anda er úthellt yfir allt hold. Það gerðist með miklum hamagangi á fyrsta hvítasunnudag eftir upprisu Drottins er þeir sem biðu í loftstofunni eftir fyrirheiti Guðs urðu frumgróði þeirra sem tóku á móti náðargjöfinni:

Þá er upp var runninn hvítasunnudagur, voru þeir allir saman komnir. Varð þá skyndilega gnýr af himni eins og aðdynjanda sterkviðris og fyllti allt húsið, þar sem þeir voru. Þeim birtust tungur, eins og af eldi væru, er kvísluðust og settust á hvern og einn þeirra. Þeir fylltust allir heilögum anda og tóku að tala öðrum tungum, eins og andinn gaf þeim að mæla. (Postulasagan 2:1-4)

Hér er frásögnin af því þegar Andinn kom og vitjaði þeirra sem biðu fyrirheitis Drottins. Drottinn Jesús Kristur var sjálfur horfinn til himins, en Hann hafði lofað að skilja börn sín ekki eftir munaðarlaus. Gjöf Heilags Anda, sem úthellt var á hvítasunnudag var að því leytinu dýrmætari en það sem Guð hafði gefið þessum heimi áður, að nú tók Andinn sér bólfestu í hinum trúuðu. Þeir fylltust Heilögum Anda og tóku að tala tungum eins og Andinn gaf að mæla. Áður hafði Andi Guðs ekki búið í mönnum heldur hafði hann aðeins verið yfir þeim skamma hríð í senn. Það verk sem maðurinn leyfði Guði ekki að vinna í sér með lögmálinu ætlar Hann sér að vinna fyrir tilverknað Heilags Anda sem nú býr í hinum trúuðu.

Pétur tók að sér það hlutverk á hvítasunnudag að útskýra fyrir þrumulostnum Jerúsalembúum að ekki væru lærisveinar Drottins farnir að drekka heldur hefði Heilagur Andi þessa undraverðu verkan sem þeir bæði sáu og heyrðu. Hann sagði:

Eigi eru þessir menn drukknir, eins og þér ætlið, enda aðeins komin dagmál. Hér er að rætast það, sem spámaðurinn Jóel segir: Það mun verða á efstu dögum, segir Guð, að ég mun úthella anda mínum yfir alla menn. Synir yðar og dætur munu spá, ungmenni yðar munu sjá sýnir og gamalmenni yðar mun drauma dreyma. Jafnvel yfir þræla mína og ambáttir mínar mun ég á þeim dögum úthella anda mínum og þau munu spá. (Postulasagan 2:15-18)

Pétur gerði mönnum ljóst að Heilögum Anda væri úthellt yfir ALLT hold. Það er síðan undir hverjum og einum komið hvort hann tekur á móti. Er við síðan lesum um verk Heilags Anda á spjöldum bókarinnar helgu sem og í sögu kirkjunnar sjá menn að samfara fyllingu Heilags Anda eignuðust menn það tákn sem nefnt er tungutal, jafnframt því að taka á móti fjölbreyttum náðargáfum sem Andinn deilir út eftir sínum vilja. Við lesum um það í Nýja testamentinu að þeir sem skírðust í Heilögum Anda tóku að tala tungum og voru hvattir til að iðka tungutal í bæn sinni og lofgjörð til Guðs. Einnig geta menn lesið að í kjölfar skírnar í Heilögum Anda urðu náðargjafirnar virkar í söfnuðinum. Má nefna spádómsgáfu, lækningagáfu, framkvæmd kraftaverka, greiningu anda, útleggingu á tungutali o.s.frv.. Menn hafa gjarnan litið svo á að tungutal sé tákn um skírn í Heilögum Anda. 
 
Krossinn - lifandi kirkja | Hlíðasmára 5-7 | 200 Kópavogi | Sími 554 3377 | Fax 554 4500 | krossinn@krossinn.is