Í bréfi Páls postula til Rómverja segir:
"Ef þú játar með munni þínum: Jesús er Drottinn og trúir í hjarta þínu, að Guð hafi uppvakið hann frá dauðum, muntu hólpinn verða. Með hjartanu er trúað til réttlætis, en með munninum játað til hjálpræðis." Róm 10.9
Það er einfalt mál að koma til Guðs. Versið hér að ofan úr Rómverjabréfinu segir okkur að þetta er einfalt trúarskref að játa með vörunum og trúa með hjartanu.
Það verður að hafa í huga að bæn okkar til Guðs er ekki gefin í formúlum. Best er að biðja einlægt frá hjartanu. Sumum finnst þó þægilegt á fyrstu skrefum trúarinnar að fá leiðsögn við bænina.
Hér fyrir neðan er dæmi um einfalda bæn til Guðs:
Ég trúi því að Jesús Kristur hafi dáið fyrir mig og að Hann
hafi risið upp frá dauðum. Jesús ég bið Þig um að koma inn
í hjarta mitt á þessu augnabliki og frelsa mig frá syndum
mínum. Jesús ég býð Þig velkominn inn í líf mitt og ég
bið Þig um að taka þar völdin. Fylltu mig af Anda Þínum.
Heilagi Faðir, ég þakka Þér að ég er nú Þitt barn.
Amen.
Vertu velkomin(n) á samkomu til okkar!