Krossinn | lifandi kirkja - Formáli

Kenningar lifandi safnaðar
eftir Gunnar Þorsteinsson

 

Formáli
 
Ég hef um langt skeið gert mér grein fyrir því að bók sem þessi er löngu orðin nauðsyn. Margir hafa tekið að sér að upplýsa fólk um hverjar kenningar Krossins eru og hefur það verið gert með ýmsum hætti og oft mjög vafasömum. Ég vona að bók þessi svari mörgum spurningum og vekji enn fleiri um Orð Guðs og gildi þess að þekkja sannleikann.

Bók þessa hef ég unnið á nokkrum árum á stopulum stundum til ritstarfa. Ég hef víða leitað fanga og því miður hef ég ekki tök á að geta allra þeirra sem ég hef gengið í smiðju til og þess vegna vel ég þann kost að sleppa með öllu heimildaskrá. En að sjálfsögðu er það fyrst og síðast Orð Guðs sem er grunnur þess sem ég set fram í veikleika. Ég byggi líf mitt allt og þjónustu á Heilagri Ritningu og hún hefur verið mér stöðug uppspretta fræðslu, umvöndunar, leiðréttinga og menntunar.

Það er ósk mín og bæn að bók þessi megi verða til blessunar og opna augu manna og kvenna fyrir dýrmætum eilífum sannindum.

Það hafa verið forréttindi að vinna að uppbyggingu Krossins um tuttugu ára skeið og sjá söfnuðinn vaxa og dafna og verða að lifandi ljósi fyrir marga. Forsenda þess árangurs sem náðst hefur er lifandi kenningar byggða á bjargföstu opinberuðu Orði - hér getur að líta í hnotskurn hverjar þær eru.

Gunnar Þorsteinsson
 

Krossinn - lifandi kirkja | Hlíðasmára 5-7 | 200 Kópavogi | Sími 554 3377 | Fax 554 4500 | krossinn@krossinn.is